Skot í fót á íþróttasíðu

Það má með sanni segja að maður hafi getað brosað út í annað þegar Blaðið bauð upp á algjöra dínamík á íþróttasíðu sinni í gær. Farið var yfir liðsstyrkingar liða í Landsbankadeildinni fyrir komandi tímabil. Birtir voru listar yfir þá leikmenn sem hafa gengið til liðs við hvert lið í deildinni.

Það fyrsta sem ég rak augun í voru hve margir leikmenn voru á listunum. Samkvæmt þessum lista er HK búið að fá heila sextán leikmenn, glænýjan hóp eftir að hafa unnið sér sæti í deildinni! Þá er sagt að Keflavík hafi fengið heila tuttugu nýja leikmenn fyrir komandi átök og Fylkir og Valur nítján!

Þegar nöfn þessara leikmanna eru betur skoðuð kemur í ljós að Blaðið skaut sig vel í fótinn. Hefur ekki verið haft mikið fyrir því að vinna þessa frétt og aðeins notast við félagaskiptatalið af ksi.is. Það sem blaðamaður blaðsins Blaðið hefur ekki gert sér grein fyrir því er að á vefsíðu KSÍ eru líka gefin upp félagaskipti fyrir yngri flokka.

Ekki veit ég t.d. hvað Dagur Snær Grétarsson, átta ára leikmaður, á að gera fyrir Fylki í Landsbankadeildinni í sumar. Hann á kannski framtíðina fyrir sér en ég ætla að leyfa mér að efast að hann styrki meistaraflokk Fylkis í bráð. Jakob Þór Bergþórsson, fæddur 1994, genginn til liðs við KR og svo mætti lengi lengi telja...

Já þetta er kostulegt. Miklar hrókeringar í boltanum eins og segir í fyrirsögn blaðsins!


Leið 12

Að taka strætó #12 fyrir utan FB er góð skemmtun... að taka hann í vitlausa átt og fara hálftíma hring um Árbæ og svo aftur upp í FB er enn betri skemmtun.

Skeining númer eitt

Sælt veri fólkið... fyrst maður situr fyrir framan tölvu nánast allan daginn og bætir á sig aukakílóum er blogg það minnsta sem ég get boðið upp á.

Hef orðið fyrir einhverjum þrýstingi að byrja aftur að blogga en þurfti að jafna mig á misheppnuðustu bloggsíðu sögunnar en það var sú síðasta sem ég opnaði.

Nú þegar ég hef skipt um vinnustað, stokkið frá Fréttablaðinu yfir á DV, ákvað ég að skeina mér og standa við loforð um að byrja að blogga að nýju. Nestorinn var búinn að bjóða upp á ófá skotin og Skapti þrýsti einnig fast á mann alla leið frá Akureyri.

Skapti, betur þekktur sem Hjalti Þór Hreinsson, fjölmiðlafræðinemi frá Akureyri og einn minn besti vinur fær innilegar afmæliskveðjur. Hann er að fara að sjá einhverja tvo skítaleiki á Anfield á næstu dögum.

 Svo má segja frá því að Benni Bó, sessunautur minn í vinnunni, þolir ekki blogg. Sem gerir þetta allt saman enn skemmtilegra.

En já, fyrsta færslan semsagt um ekki neitt og hvað lofar það nema góðu?


« Fyrri síða

Um bloggið

Bolablogg Elvars

Höfundur

Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Íþróttafíkill sem starfar hjá DV. Breiðhyltingur fram í fingurgóma. Er forseti 3. deildarliðsins KB og stuðningsmaður Leiknis, Inter og ManJú.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Spurt er

Tekurðu þátt í skoðanakönnunum á bloggsíðum?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 538

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband